14.06.2011
Átakið "Leggur þú þitt af mörkum?"
Samstarf ASÍ, SA og RSK um eflingu góðra atvinnuhátta
Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og embætti Ríkisskattstjóra kynntu í dag sameiginlegt átak þessara aðila til þess að hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að standa rétt að samningum sín í milli. Athyglinni verður beint sérstaklega að litlum og meðalstórum fyrirtækjum og áhersla lögð á að svört atvinnustarfsemi, undanskot á launatengdum gjöldum og brot og kjarasamningum sé skaðleg fyrir alla hlutaðeigandi og samfélagið í heild sinni.
Átakið mun standa fram á haustmánuði. Fulltrúar aðilanna þriggja munu heimsækja vinnustaði, kanna aðstæður, veita ráðgjöf og fræðslu um viðeigandi reglur og lagaramma og hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að gera nauðsynlegar úrbætur ef þurfa þykir.
Markmið verkefnisins er að stuðla að betri tekjuskráningu, tryggja að starfsmenn séu skráðir á launaskrá og að farið sé að lögum og reglum. Um leið er hvatt til þess að opinber gjöld skili sér á réttum tíma ásamt lögboðnum og samningsbundnum framlögum til lífeyrissjóða og gjöldum til stéttarfélaga.
Átakið verður unnið undir yfirskriftinni „Leggur þú þitt af mörkum”. Þar er skírskotað til þess að bæði atvinnurekendur og launafólk hafi víðtækar skyldur bæði til starfsgreina sinna og samfélagsins í heild. Stefnt er að því að fyrirtæki í fjölda atvinnugreina um land allt verði heimsótt.
Af hálfu aðila vinnumarkaðarins er formleg aðkoma að verkefninu byggð á lögum um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum og samkomulagi ASÍ og SA um framkvæmd þeirra mála.
Í lögunum segir um markmið þeirra:
„Markmið laga þessara er að tryggja að atvinnurekendur á innlendum vinnumarkaði og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum.“
Þá segir að: „Samtök aðila vinnumarkaðarins skulu semja nánar um það í kjarasamningum sín á milli til hvaða atvinnugreina og starfa innan þeirra lög þessi taka á hverjum tíma. Skulu þeir kjarasamningar sem og aðrir samningar sem gerðir eru milli aðila um nánari framkvæmd laga þessara gilda um alla atvinnurekendur sem starfa innan þeirra atvinnugreina á innlendum vinnumarkaði sem tilgreindar eru í samningum aðila.“
Það verður þannig hlutverk fulltrúa ASÍ og SA í eftirlitsátakinu úti á vinnustöðunum að kynna lögin um vinnustaðaskírteini og samkomulag ASÍ og SA um það efni og fylgja eftir að réttindi starfsmanna skv. lögum og kjarasamningum séu virt.
Einn þáttur í því er að taka á gerviverktöku sem ástæða er til að hafi farið vaxandi á síðustu mánuðum og misserum. Þar er líka beinn snertiflötur við eftirlit ríkisskattstjóra.
Fréttatilkynning vegna átaksins er hér.


