Vinnustaðaskírteini ná til fleiri atvinnugreina

09.05.2011

Vinnustaðaskírteini ná til fleiri atvinnugreina

Samhliða gerð nýs kjarasamnings á milli aðildarsamtaka ASÍ og Samtaka atvinnulífsins 5. maí sl. var undirritað viðbótarsamkomulag um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum sem felur í sér að skyldan til að bera vinnustaðaskírteini nær til fleiri atvinnugreina en áður.
Samkvæmt fyrra samkomulagi sem undirritað var 15. júní 2010 skulu atvinnurekendur og starfsmenn þeirra sem vinna við byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, rekstur gististaða eða veitingarekstur bera vinnustaðaskírteini. Með samkomulaginu nú er gildissviðið útvíkkað þannig að skyldan til að bera vinnustaðaskírteini nær nú til eftirtalinna atvinnugreina: Söluturnar, húsgagna- og innréttingaiðnaður, gleriðnaður og skylda starfsemi, kjötiðnað, bakstur, bílgreinar, ýmsar málm- og véltæknigreinar, fjarskipti og upplýsingastarfsemi og öryggisþjónustu. Atvinnugreinarnar eru nánar skilgreindar í fylgiskjali 1 með uppfærðu samkomulagi ASÍ og SA. Sama gildir um atvinnurekendur og starfsmenn þeirra sem ekki eru taldir upp hér að framan en vegna vinnu sinnar sinna verkefnum í slíkum fyrirtækjum þegar þeir eru við þau störf.
Síðar, á árinu 2012, koma fleiri atvinnugreinar til sbr. fylgiskjal 2 með samkomulaginu.
Þá hafa samningsaðilar ákveðið að fela Staðlaráði Íslands gerð staðals um vinnustaðaskírteini. Stefnt er að því að vinnu við staðalinn ljúki fyrir lok árs 2011. Með staðlinum verður einnig gerð sú krafa að starfsheiti viðkomandi starfsmanns komi fram.
Viðbótarsamkomulagið í heild má sjá hér.