04.11.2011
Niðurstöður "Leggur þú þitt af mörkum?"
2. nóvember sl. voru kynntar niðurstöður átaksins "Leggur þú þitt af mörkum?" sem unniö var í samstarfi ASÍ, SA og RSK.
24.08.2011
Leggur þú þitt af mörkum? - staða verkefnisins
Í fréttatilkynningu sem ASÍ, SA og RSK sendu frá sér í dag kemur fram að verkefnið gangi vel. Hátt í 1500 fyrirtæki hafa þegar verið heimsótt og á 5. þúsund starfsmenn skráðir.
14.06.2011
Átakið "Leggur þú þitt af mörkum?"
Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og embætti Ríkisskattstjóra kynntu í dag sameiginlegt átak þessara aðila til þess að hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að standa rétt að samningum sín í milli. Athyglinni verður beint sérstaklega að litlum og meðalstórum fyrirtækjum og áhersla lögð á að svört atvinnustarfsemi, undanskot á launatengdum gjöldum og brot og kjarasamningum sé skaðleg fyrir alla hlutaðeigandi og samfélagið í heild sinni.
09.05.2011
Vinnustaðaskírteini ná til fleiri atvinnugreina
Samhliða gerð nýs kjarasamnings á milli aðildarsamtaka ASÍ og Samtaka atvinnulífsins 5. maí sl. var undirritað viðbótarsamkomulag um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum sem felur í sér að skyldan til að bera vinnustaðaskírteini nær til fleiri atvinnugreina en áður.
Jafnframt var ákveðið að fela Staðlaráði Íslands að gera staðal um vinnustaðaskírteini.


